Hvernig á að byrja að selja?

Leiðbeiningar fyrir nýjan söluaðila sem selur eina áskriftarvöru með tveimur verðum, til dæmis mánaðar- og ársverði, tekur við kortum gegnum nýju Teya-gáttina og selur annaðhvort á hýstri greiðslusíðu Áskels eða í widgeti á eigin vef.

Hvor leiðin hentar

Veldu greiðslusíðu nema þú hafir bakenda og einhvern sem setur inn kóða. Skref 1–3 eru eins fyrir báðar leiðir og þú getur bætt widgeti við síðar.

Leið A: Greiðslusíða

Leið B: Widget

Hvar kaupandi greiðir

Á síðu Áskels sem þú tengir á

Inni á þínum vef

Forritun

Engin

Bakendi stofnar lotu með leynilegum API-lykli

Vefkerfi

Hvaða vefur sem er, líka Wix og Squarespace

Vefur með eigin þjóni, til dæmis Node, PHP eða Python

Apple Pay

Mögulegt á eigin undirléni, Áskell virkjar

Nei

Skref

1, 2, 3 og A

1, 2, 3 og B

Áður en þú byrjar

  • Áskell-aðgangur. Skráning er á askell.is/signup.

  • Samningur við Teya um netgreiðslur og Teya-auðkenni sem kemst inn í Teya Business Portal.

  • Heiti vörunnar, verðin tvö og hvort þau eru með eða án VSK.

  • Slóð vefsins þíns og slóð á skilmála.

  • Fyrir widget: þjónn (bakendi) sem getur geymt leynilegan API-lykil, og einhver sem setur kóðann inn, forritari eða gervigreind.

Skref 1: Tengja Teya-gáttina

Þú slærð enga lykla inn. Áskell opnar Teya, þú skráir þig inn og velur verslun, og Teya sendir tengiupplýsingarnar beint til Áskels.

  1. Í stjórnborði Áskels: Stillingar → Færsluhirðar → Bæta við færsluhirði.

  2. Nafn: til dæmis „Teya kort“. Kaupendur sjá ekki nafnið.

  3. Tegund: veldu Greiðslukort (Teya). Ekki velja „Greiðslukort (Saltpay/Teya RPG)“, það er gamla gáttin.

  4. Gjaldmiðlar: ISK er valið sjálfgefið. Bættu aðeins við gjaldmiðli sem Teya-verslunin þín tekur við.

  5. Hafðu rofann Tengjast Teya prófunarumhverfi óvirkan. Hann er aðeins fyrir sérstaka prófunarverslun hjá Teya.

  6. Smelltu á Vista. Þú lendir á síðu færsluhirðisins með reitnum Teya tenging, merktum Ekki tengd.

  7. Smelltu á Tengjast Teya. Teya opnast í nýjum flipa.

  8. Skráðu þig inn með Teya-auðkenninu þínu og veldu verslunina sem á að taka við greiðslunum.

  9. Farðu aftur í flipann með Áskeli. Innan fárra sekúndna stendur Tengd og „Verslun: … · Tengd þann …“ með auðkenni verslunarinnar hjá Teya.

Ljúktu skrefum 7–9 innan 10 mínútna. Annars birtist „Ekki hefur borist staðfesting á tengingu frá Teya“ og þú smellir aftur á Tengjast Teya.

Prófunar- eða raunumhverfi: ekki er hægt að skipta á meðan færsluhirðirinn er tengdur. Stofnaðu frekar sér færsluhirði fyrir hvort umhverfi. Rofinn gildir eins og hann var síðast vistaður, svo smelltu á Vista áður en þú tengir.

Apple Pay er ekki sjálfgefið virkt og söluaðili getur ekki kveikt á því sjálfur. Það býðst aðeins á greiðslusíðum á eigin undirléni, ekki í widgetinu. Hafðu samband við Áskel ef þú vilt bjóða það.

Skref 2: Stofna vöruna og verðin tvö

Þú stofnar eina vöru og setur bæði verðin á hana í sama glugga. Dæmið hér notar 1990 kr. á mánuði og 19900 kr. á ári.

Fyrst virðisaukaskattur, ef þú innheimtir VSK: Stillingar → Skattareglur → Bæta við skattareglu. Kveiktu á Sjálfgefið fyrir reikning og settu Prósenta og Útreikningsaðferð í útgáfunni. Veldu Með skatti ef verðin sem þú slærð inn eru með VSK. Sjálfgefið er Án skatts, og þá bætist VSK ofan á: 1990 kr. verða 2468 kr. með 24% VSK. Engin skattaregla þýðir að enginn VSK er reiknaður.

  1. Áskriftir → Vörulisti → Ný vara.

  2. Heiti vöru: nafnið sem kaupandi sér, til dæmis „Fréttabréf Plús“.

  3. Aðeins rafrænt: hafðu kveikt nema þú sendir eitthvað heim. Ef slökkt er biður kaupferlið um heimilisfang.

  4. Tilvísun: hafðu tómt eða læsilegt. Widgetið sýnir tilvísunina undir hvoru verði.

  5. Skattaregla: „Nota sjálfgefinn virðisaukaskatt“, eða „Ekki reikna virðisaukaskatt“ ef enginn VSK á við.

  6. Valkvætt: Aðrar stillingar → Bæta við stillingu → Prufutími. Prufutíminn gildir um bæði verðin.

  7. Fyrsta verðspjaldið undir Verð er opið. Fylltu út og smelltu á Vista verð:

    • Einingaverð: 1990, aðeins tölustafir, enginn punktur eða „kr.“

    • Gjaldmiðill: ISK

    • Lýsing: „Mánaðaráskrift, innheimt mánaðarlega“

    • Tegund endurnýjunar: Endurtekið

    • Tímabil: Mánuðir, Fjöldi tímabila: 1

  8. Smelltu á Bæta við verði, fylltu eins út og smelltu aftur á Vista verð. Munurinn er:

    • Einingaverð: 19900

    • Lýsing: „Ársáskrift, innheimt árlega“

    • Tímabil: Ár, Fjöldi tímabila: 1

  9. Þegar bæði verðin eru vistuð, smelltu á Vista neðst í glugganum. Verðin vistast ekki fyrr en þá, og Vista er óvirkt á meðan verðspjald er opið.

Ekki sleppa lýsingu verðsins, þótt reiturinn sé valkvæður. Widgetið sýnir heiti vörunnar og upphæðina á hvoru verði, en ekki tímabilið. Án lýsingar líta verðin tvö eins út, fyrir utan upphæðina.

Láttu aðrar stillingar verðspjaldsins vera eins og þær eru. Ekki nota Bæta við útgáfu (tímasett verðbreyting) eða Viðskiptavinur velur upphæð. Gjaldmiðill verðsins verður að vera í Gjaldmiðlar á Teya-færsluhirðinum.

Skref 3: Stofna og virkja sölurás

Sölurásin ræður hvað er selt, hvar og gegnum hvern færsluhirði. Bæði greiðslusíða og widget þurfa virka sölurás.

  1. Áskriftir → Sölurásir → Ný sölurás.

  2. Heiti sölurásar: til dæmis „Áskrift á vef“.

  3. Tilvísun: stutt orð með bókstöfum, til dæmis askrift. Ekki eingöngu tölustafi. Forritarinn þarf þetta gildi fyrir widgetið.

  4. Leyfð lén fyrir iframe og greiðslur: slóð vefsins án þess sem kemur á eftir léninu, til dæmis https://www.minnvefur.is, og ýttu á Enter. Bættu líka við https://minnvefur.is ef vefurinn svarar án www. Þetta þarf líka þegar aðeins greiðslusíða er notuð, annars er ekki hægt að virkja rásina.

  5. Framboð tilboðs → Bæta við vöru, verði eða vörupakka → veldu „Varan þín: Heil vara“. Þá eru bæði verðin í boði.

  6. Val á verði: veldu Viðskiptavinir velja nákvæmlega eitt verð í hverjum kaupum. Annars getur kaupandi keypt mánaðar- og ársáskrift í sömu kaupum.

  7. Sjálfgefin fjöldatakmörk: kveiktu á og settu Sjálfgefið hámark á 1. Annars getur kaupandi keypt fleiri en eina áskrift í sömu kaupum.

  8. Greiðslur → Bæta við færsluhirði → veldu Teya-færsluhirðinn úr skrefi 1. Hann verður Sjálfgefið.

  9. Stillingar greiðsluferlis:

    • Tilvísun/Kennitala: „Íslensk kennitala“ ef kaupandi á að slá inn kennitölu.

    • Skilmálahlekkur: slóð á skilmálana þína. Þá þarf kaupandi að samþykkja þá.

  10. Smelltu á Vista. Rásin vistast sem Drög og glugginn helst opinn.

  11. Breyttu stöðunni við hlið titilsins úr Drög í Virk. Ef stöðuvalið er óvirkt eru óvistaðar breytingar í forminu, svo vistaðu fyrst.

Ef virkjun er hafnað vantar lén, færsluhirði eða vöru á rásina. Láttu Fyrir lengra komna vera óbreytt.

Leið A: Greiðslusíða

Greiðslusíðan fær vöruna, verðin og Teya úr sölurásinni. Á síðunni sjálfri er ekkert vöru- eða færsluhirðaval.

  1. Greiðslusíður → Ný greiðslusíða. Ef ekkert síðuþema er til biður Áskell þig fyrst að búa það til. Fylltu út og smelltu á Áfram.

  2. Fylltu út skyldureitina:

    • Nafn: aðeins sýnilegt þér.

    • Titill: fyrirsögnin sem kaupandi sér.

    • Texti og Mynd: hvort tveggja er skylda.

    • Þema og Uppröðun: veldu þemaið og Listi.

  3. Sölurás: veldu sölurásina úr skrefi 3. Hún birtist aðeins ef hún er Virk.

  4. Stillingar fyrir viðskiptamannanúmer: Íslensk kennitala.

  5. Skilmálahlekkur (valkvæmur): slóð á skilmálana þína.

  6. Hlekkur fyrir áframsendingu (valkvætt): síða á þínum vef sem kaupandi fer á eftir kaup, til dæmis „Takk fyrir“.

  7. Kveiktu á Virk efst í forminu. Nýjar síður eru óvirkar.

  8. Smelltu á Vista. Síðan opnast í glugganum.

  9. Smelltu á stækkunarglerið efst í glugganum (Forskoðun). Síðan opnast í nýjum flipa og slóðin í vafranum er hlekkurinn þinn, á forminu https://askell.is/public/payments/<númer>/, eða á þínu undirléni ef það er skráð.

  10. Settu hlekkinn á hnapp eða tengil á vefnum þínum.

Kaupandinn smellir á annað verðspjaldið, sem sýnir „Áskrift · tímabil“, fyllir út nafn, kennitölu, netfang og síma og greiðir með korti í Teya-glugga. Ekki setja greiðslusíðuna í iframe, hún birtist ekki þar. Notaðu venjulegan hlekk.

Hægt er að fylla reiti út fyrir fram með því að bæta við slóðina, til dæmis ?email=jon@example.is&name=Jón%20Jónsson. Reitir sem eru fylltir svona eru læstir. Nánar í Greiðslusíður.

Leið B: Widget á eigin vef

Widgetið (askell.js) birtir kaupferlið inni á þínum vef. Þjónninn þinn stofnar fyrst skammlífa lotu með leynilegum API-lykli, og vafrinn fær aðeins lotutáknið.

Svona gengur kaupferlið

  1. Kaupandi opnar áskriftarsíðuna þína.

  2. Þjónninn þinn stofnar lotu hjá Áskeli með leynilyklinum og fær token til baka.

  3. Síðan hleður askell.js og sýnir widgetið með tákninu.

  4. Kaupandi velur verð, fyllir út upplýsingar, samþykkir skilmála og slær inn kort í Teya-glugga.

  5. Widgetið kallar á onSuccess. Þjónninn þinn staðfestir kaupin hjá Áskeli áður en aðgangur er veittur.

Uppsetning

  1. Stillingar → API lyklar → Búa til nýjan API lykil, nafn til dæmis „Vefur“, og Vista.

  2. Afritaðu Leynilegur lykill strax, hann birtist aðeins einu sinni. Geymdu hann sem umhverfisbreytu á þjóninum, til dæmis ASKELL_SECRET_KEY. Aldrei í HTML, JavaScript eða git.

  3. Staðfestu að lén síðunnar sé nákvæmlega eins í Leyfð lén sölurásarinnar. https://www.minnvefur.is og https://minnvefur.is eru tvö ólík lén, og ekkert skástrik á að vera í lokin.

  4. Láttu forritarann eða gervigreindina fá promptinn hér að neðan, ásamt Tilvísun sölurásarinnar.

Lágmarksdæmi

Þjónninn stofnar lotuna:

POST https://askell.is/api/v2/checkout-sessions/
Authorization: Api-Key <ASKELL_SECRET_KEY>
Content-Type: application/json

{"sales_channel": "askrift", "contract_reference": "notandi-123"}

Svarið inniheldur "token". Síðan sýnir widgetið með því:

<div id="askell-checkout"></div>
<script src="https://cdn.askell.is/js/dist/askell.js"></script>
<script>
  Askell.mountCheckout("#askell-checkout", {
    sessionToken: "TOKEN_FRA_THJONINUM",
    language: "is",
    onSuccess() { window.location.href = "/takk"; },
    onError(error) { console.error(error); }
  });
</script>

Staðfesting á þjóni

Ekki veita aðgang út frá onSuccess einu saman. Þjónninn sækir GET /api/v2/checkout-sessions/<token>/ og athugar að status sé completed. Síðan sækir hann samninginn í contract_id með GET /api/v2/subscription-contracts/<contract_id>/ og veitir aðgang þegar service_active er true. Til að heyra af endurnýjunum og uppsögnum: Stillingar → Vefkrókar, atburður subscription_contract.*, sjá Vefkrókar.

contract_reference er þín tilvísun, til dæmis notandanúmer eða pöntunarnúmer. Hún lendir á samningnum og í öllum vefkrókum. Ekki senda customer_reference nema viðskiptavinurinn sé þegar til í Áskeli, því widgetið spyr sjálft um kennitölu. Nánar í Innfellt kaupferli.

Prófað áður en farið er í loftið

Prófaðu fyrst með gervi-færsluhirði á sérstakri prófunarsölurás, svo engin raunveruleg greiðsla fer fram. Ljúktu síðan með einum raunkaupum gegnum Teya.

Prófunaruppsetning, einu sinni

  1. Stillingar → Færsluhirðar → Bæta við færsluhirði, Tegund: „Credit card (for testing simulated 3D secure flow)“.

  2. Stofnaðu aðra sölurás eins og í skrefi 3, með Tilvísun askrift-prof og gervi-færsluhirðinn í stað Teya. Forritari bætir http://localhost:3000 eða sínu léni við Leyfð lén.

  3. Greiðslusíða: stofnaðu sér prófunargreiðslusíðu sem notar prófunarsölurásina og settu hana aldrei á vefinn. Ekki skipta um sölurás á síðu sem er þegar tengd á vefnum, því með gervi-færsluhirðinum getur hver sem er keypt án þess að greiða.

  4. Widget: forritarinn sendir "sales_channel": "askrift-prof".

Með gervi-færsluhirðinum gildir hvaða kortanúmer sem er með 11–19 tölustöfum. CVV 322 sleppir 3-D Secure skrefinu, CVV 400 lætur skráningu mistakast og CVV 500 skráir kortið en allar skuldfærslur mistakast.

Prófaðu þetta

  • Bæði verðin birtast, hvort með sína lýsingu, og aðeins er hægt að velja annað.

  • Upphæðin á yfirferðarskrefinu er rétt, með VSK eins og þú ætlaðir.

  • Kaup með CVV 322 tekst og samningur birtist undir Áskriftir → Áskriftir með réttu verði.

  • Kaup með CVV 400 sýna villu og búa ekki til virkan samning.

  • Kaupandi lendir á réttri síðu eftir kaup.

  • Widget: þjónninn staðfestir kaupin og veitir aðgang, og vefkrókurinn berst. Vefkrókar berast ekki á localhost, svo notaðu opinbera slóð, til dæmis gegnum ngrok.

Í loftið

  1. Greiðslusíða: tengdu á raunverulegu síðuna sem notar sölurásina askrift. Widget: breyttu sales_channel aftur í askrift.

  2. Keyptu áskrift einu sinni með eigin korti gegnum Teya.

  3. Staðfestu að samningurinn sé virkur og að greiðslan sé í Teya Business Portal.

  4. Opnaðu Færslur eða Innheimtutilraunir, veldu greiðsluna og smelltu á Endurgreiða. Segðu svo áskriftinni upp undir Áskriftir → Áskriftir.

  5. Settu prófunarsölurásina í Sett í geymslu og eyddu prófunargreiðslusíðunni.

Prompt fyrir gervigreind

Afritaðu allan textann hér að neðan í ChatGPT, Claude, Cursor eða sambærilegt tól. Fylltu fyrst út hornklofana undir MÍNAR UPPLÝSINGAR. Promptinn bannar tólinu að finna upp aðra endapunkta en þeir sem á að nota.

Þú ert reyndur vefforritari. Hjálpaðu mér að setja áskriftarkaup frá Áskeli (askell.is) inn á vefinn minn með innfellda widgetinu askell.js. Ein vara er í boði með tveimur verðum (mánaðar og árs) og kaupandi velur annað þeirra í widgetinu. Kortagreiðslur fara gegnum Teya, sem er tengt í Áskeli og birtist sjálfkrafa inni í widgetinu. Þú skrifar engan Teya-kóða.

MÍNAR UPPLÝSINGAR:
- Vefkerfi og bakendi: [t.d. Next.js, Express, Laravel, Django, WordPress/PHP]
- Síðan sem widgetið á að vera á: [t.d. https://www.minnvefur.is/askrift]
- Takk-síða eftir kaup: [t.d. /takk]
- Auðkenning notenda: [t.d. innskráðir notendur með user.id, eða engin innskráning]
- Tilvísun sölurásar: askrift (prófunarsölurás: askrift-prof)

1. BAKENDALEIÐ SEM STOFNAR LOTU, t.d. POST /api/askell/session
- Kallar á POST https://askell.is/api/v2/checkout-sessions/
- Hausar: "Authorization: Api-Key <ASKELL_SECRET_KEY>" og "Content-Type: application/json"
- Body: {"sales_channel": <ASKELL_SALES_CHANNEL>, "contract_reference": <notandanúmer eða pöntunarnúmer, mest 128 stafir, engin komma>, "expires_in_seconds": 1800}
- Má bæta við "metadata": {...} með mínum eigin gögnum.
- Sendu EKKI "customer" eða "customer_reference". Widgetið spyr kaupandann sjálft um kennitölu, nafn, netfang og síma.
- Svar 201 inniheldur "token". Geymdu það á þjóninum með notandanum eða pöntuninni (t.d. í session) og skilaðu vafranum aðeins {"sessionToken": token}.
- Stofnaðu nýja lotu í hvert sinn sem síðan er opnuð. Lota er skammlíf og nýtist aðeins einu sinni.
- ASKELL_SALES_CHANNEL kemur úr umhverfisbreytu svo ég geti skipt á milli askrift-prof og askrift.

2. FRAMENDI Á SÍÐUNNI
- <div id="askell-checkout"></div>
- <script src="https://cdn.askell.is/js/dist/askell.js"></script>, hlaðið beint af þessari slóð. Ekki afrita skrána eða setja hana í bundle, hún sækir askell.css sjálf úr sömu möppu.
- Sæktu sessionToken frá leið 1 og kallaðu svo á:
  const handle = window.Askell.mountCheckout('#askell-checkout', {
    sessionToken,
    language: 'is',
    title: 'Veldu áskrift',
    onSuccess(result) { /* kalla á leið 3, svo á takk-síðuna */ },
    onError(error) { /* error.status og error.payload geta fylgt */ },
  });
- Ekki senda baseUrl (sjálfgefið er https://askell.is). Ekki senda "offer", því þá getur kaupandi ekki valið á milli verðanna.
- mountCheckout skilar { destroy() }. Í React, Vue eða annarri SPA: kallaðu á handle.destroy() þegar íhluturinn hverfur, og gættu þín á tvöfaldri keyrslu í React StrictMode.
- onSuccess: treystu því ekki einu og sér. Kallaðu á leið 3 og sendu kaupandann svo á takk-síðuna.
- onError: sýndu vinalega villu á íslensku og hnapp sem sækir nýja lotu og sýnir widgetið aftur.

3. BAKENDALEIÐ SEM STAÐFESTIR KAUP, t.d. POST /api/askell/verify
- Notar token lotunnar sem er geymt á þjóninum, ekki gildi frá vafranum.
- GET https://askell.is/api/v2/checkout-sessions/<token>/ með sama Authorization-haus. Krefstu þess að status sé "completed" og lestu contract_id.
- GET https://askell.is/api/v2/subscription-contracts/<contract_id>/. Veittu aðgang aðeins ef service_active er true. Vistaðu contract_id, customer_id og items[].price_id, sem segir hvort verðið var keypt.
- Ef service_active er enn false, reyndu aftur nokkrum sinnum á um 30 sekúndum. Vefkrókurinn í lið 4 klárar málið annars.

4. VEFKRÓKUR, t.d. POST /api/askell/webhook
- Áskell sendir JSON {"event", "ref", "sender", "data"}, þar sem data er samningurinn.
- Staðfestu hausinn Hook-HMAC áður en nokkuð annað er gert: base64(HMAC-SHA512(ASKELL_WEBHOOK_SECRET, hrá bæti body)), borið saman í föstum tíma. Notaðu hráa body-ið, ekki JSON sem hefur verið lesið og skrifað aftur. Svaraðu 401 ef það passar ekki.
- Bregðstu við subscription_contract.activated, .renewed, .changed, .canceled og .ended. Finndu notandann með data.reference, sem er contract_reference frá lið 1, og stilltu aðgang eftir data.service_active.
- Svaraðu 200 fljótt. Vinnslan verður að þola að sami atburður berist tvisvar.

5. ÖRYGGI
- ASKELL_SECRET_KEY og ASKELL_WEBHOOK_SECRET eru aðeins í umhverfisbreytum á þjóninum. Aldrei í vafra, logum eða git. Búðu til .env.example án gilda.
- Ef vefurinn notar Content-Security-Policy: script-src og style-src https://cdn.askell.is (style-src þarf líklega líka 'unsafe-inline'), connect-src og frame-src https://askell.is, og img-src https: fyrir vörumyndir.
- Lén síðunnar verður að vera nákvæmlega skráð í "Leyfð lén" sölurásarinnar, annars svarar Áskell 403 "Origin is not allowed for this checkout session."

SKILAÐU
- Öllum kóða fyrir mitt kerfi, með skráarheitum og hvar hver bútur á heima.
- .env.example með ASKELL_SECRET_KEY, ASKELL_WEBHOOK_SECRET og ASKELL_SALES_CHANNEL.
- Stuttum prófunarlista: kaup gegnum askrift-prof (hvaða kortanúmer sem er með 11–19 tölustöfum, CVV 322), staðfesting á þjóni, vefkrókur (Áskell sendir ekki vefkróka á localhost, notaðu t.d. ngrok), og svo skipti yfir í askrift.
Ef eitthvað vantar undir MÍNAR UPPLÝSINGAR, spurðu áður en þú skrifar kóða. Ekki nota aðra endapunkta eða reiti hjá Áskeli en þá sem eru nefndir hér. Ef þig vantar meira skaltu vísa í https://docs.askell.is/is/api/embedded_checkout.html og https://askell.is/api/swagger/v2/.

Til að fá ASKELL_WEBHOOK_SECRET: Stillingar → Vefkrókar → Bæta við vefkrók. Veldu Atburður: „Allir atburðir áskrifta“ (subscription_contract.*), settu slóð leiðar 4 í Vefslóð og smelltu á Vista. Opnaðu svo vefkrókinn í listanum. Leyndarmálið er í reitnum HMAC Secret og hnappurinn Afrita lykilorð afritar það.

Algengar villur

Einkenni

Ástæða

Lausn

Sölurásin birtist ekki í vali á greiðslusíðu

Rásin er Drög

Settu hana á Virk, síðasti liður í skrefi 3

„Bættu við að minnsta kosti einu leyfðu léni áður en þessi rás er virkjuð.“

Ekkert lén á rásinni

Bættu við slóð vefsins þíns

Kaupandi getur valið bæði verðin

Val á verði er á sjálfgefnu

Veldu „nákvæmlega eitt verð“ og endurhlaðaðu síðuna

Verðin líta eins út í widgetinu

Engin Lýsing á verðunum

Skrifaðu lýsingu á hvort verð

Upphæðin er hærri en verðið

VSK bætist ofan á (Án skatts)

Settu skattaregluna á Með skatti

Widget: 403 „Origin is not allowed for this checkout session.“ eða kortaglugginn birtist ekki

Lén síðunnar er ekki nákvæmlega í Leyfð lén: www, http/https eða skástrik í lokin

Lagaðu lénið og endurhlaðaðu síðuna

Widget: 404 á lotu

Lotan er útrunnin eða þegar notuð

Stofnaðu nýja lotu við hverja birtingu

400 á sales_channel þegar lota er stofnuð

Rásin er ekki virk, eða tilvísunin er röng eða eingöngu tölustafir

Athugaðu stöðu og Tilvísun rásarinnar

401 eða 403 þegar lota er stofnuð

Rangur lykill, eða opinn lykill notaður

Notaðu Leynilegur lykill í Api-Key hausnum

„A customer with this reference already exists.“

Kennitalan er þegar skráð með öðru netfangi

Kaupandi notar sama netfang og áður, eða þú leiðréttir netfangið á viðskiptavininum

„Teya er ekki tengt fyrir þennan færsluhirði.“

Tengingu vantar eða hún var aftengd

Skref 1, liðir 7–9

Kortaskráning eða endurnýjun mistekst alltaf

Teya-verslunin má ekki vista kort eða taka greiðslur að frumkvæði söluaðila

Biddu Teya að virkja hvort tveggja

„Aftengdu Teya áður en þú skiptir milli prófunar- og raunumhverfis“

Rofanum var breytt á tengdum færsluhirði

Aftengdu fyrst, eða stofnaðu nýjan færsluhirði

„Ekki tókst að hefja Teya tengingu.“ eða villa sem nefnir TEYA_PLUGIN_TYPE

Stilling hjá Áskeli

Hafðu samband við Áskel

Greiðslusíðan birtist ekki í iframe

Síðan leyfir ekki iframe

Notaðu venjulegan hlekk

Breyting á sölurás sést ekki í widgetinu

Hver lota geymir afrit af stillingum rásarinnar

Endurhlaðaðu síðuna svo ný lota verði til