Afsláttarkóðar
Afsláttarkóðar Áskels eru tveir hlutir sem vinna saman:
Afsláttur (
coupon) skilgreinir afsláttinn sjálfan: fasta upphæð (amount_offogcurrency) eða prósentu (percent_off), hversu lengi hann gildir (duration:forever,onceeðarepeatingmeðduration_in_months) og takmarkanir eins ogmax_redemptionsogredeem_by.Kynningarkóði (
promotion_code) er kóðinn sem viðskiptavinur slær inn (code) og vísar á afslátt. Hægt er að stofna marga kóða fyrir sama afsláttinn, binda kóða við einn viðskiptavin, setja gildistíma (expires_at) og lágmarksupphæð írestrictions.
Báða hlutina má stofna, sækja, uppfæra og eyða í gegnum V2 vefþjónustuna. Öll köll krefjast leynilegs API lykils. Eldri token-auðkenning er ekki studd á þessum köllum:
Authorization: Api-Key your-secret-api-key
Nákvæm skjölun á reitum og svörum er í Swagger skjölun okkar undir V2 Coupons
á /api/swagger/v2/.
Afslættir
Kall |
Lýsing |
|---|---|
|
Listar afslætti. Síur: |
|
Stofnar afslátt. |
|
Sækir einn afslátt. |
|
Uppfærir afslátt að hluta. |
|
Eyðir afslætti (mjúk eyðing). |
Dæmi um stofnun á 20% afslætti sem gildir í þrjá mánuði:
{
"name": "Sumartilboð",
"percent_off": "20",
"duration": "repeating",
"duration_in_months": 3,
"max_redemptions": 100,
"redeem_by": "2026-12-31T23:59:59Z"
}
Reglur:
Nákvæmlega annað af
amount_off(ásamtcurrency) eðapercent_offþarf að vera sett. Til að skipta á milli íPATCHer gamli reiturinn sendur semnullí sama kalli.duration_in_monthser skylda þegardurationerrepeatingog má ekki vera sett annars.redeem_byþarf að vera í framtíðinni nema afslátturinn sé þegar útrunninn; útrunninn afslátt má áfram uppfæra og eyða, en gildan afslátt er ekki hægt að gera útrunninn með dagsetningu í fortíðinni.Óþekktum reitum í
POSTogPATCHer hafnað með400.metadataogrestrictionsmá senda semnulltil að hreinsa þau.idogtimes_redeemeder ekki hægt að breyta.idmá gefa upp við stofnun (bókstafir, tölustafir, undirstrik, bandstrik og punktar, að hámarki 128 stafir), annars er það búið til sjálfkrafa.currencyþarf að vera gildur þriggja stafa ISO 4217 kóði.max_redemptionsogduration_in_monthsþurfa að vera 1 eða hærri.Afslætti sem hefur verið nýttur (
times_redeemed> 0) er ekki hægt að eyða. Notiðredeem_byeðamax_redemptionstil að loka honum.
Takmörkun við áskriftarleiðir og vörur
Afslátt má takmarka við tilteknar eldri áskriftarleiðir (applies_to_plans,
listi af auðkennum áskriftarleiða), tiltekna áskriftarmöguleika þeirra
(applies_to_plan_variants, listi af auðkennum áskriftarmöguleika),
tilteknar vörur (applies_to_products, listi af auðkennum vara) og tiltekin
verð þeirra (applies_to_prices, listi af auðkennum verða, sama id og
GET /api/v2/catalog/prices/ skilar og price í línum tilboða). Allir
listarnir eru sjálfgefið tómir og þá gildir afslátturinn um allt:
{
"name": "Afsláttur af grunnpakka",
"percent_off": "10",
"duration": "forever",
"applies_to_products": [42]
}
Um leið og einhver listanna hefur færslu er afslátturinn takmarkaður: eldri áskrift fær hann aðeins ef áskriftarleið hennar er í
applies_to_planseða áskriftarmöguleiki hennar íapplies_to_plan_variants, og lína á samningi aðeins ef vara hennar er íapplies_to_productseða verð hennar íapplies_to_prices. Afsláttur sem er aðeins bundinn við áskriftarleiðir eða áskriftarmöguleika gefur því engan afslátt á samningum, og öfugt.Áskriftarleið í
applies_to_plansnær yfir alla áskriftarmöguleika hennar en áskriftarmöguleiki íapplies_to_plan_variantsaðeins yfir sjálfan sig. Þannig má til dæmis veita afslátt af mánaðarlegri áskrift án þess að veita sama afslátt af fyrirframgreiddu ári á sömu áskriftarleið.Á sama hátt nær vara í
applies_to_productsyfir öll verð hennar en verð íapplies_to_pricesaðeins yfir sjálft sig. Þannig má til dæmis veita afslátt af mánaðarverði vöru en ekki af ársverði sömu vöru:{ "name": "Fyrsti mánuðurinn á hálfvirði", "percent_off": "50", "duration": "once", "applies_to_prices": [101] }
Á samningi er afslátturinn reiknaður af þeim línum einum sem falla undir hann:
percent_offer prósenta af þeim línum ogamount_offer að hámarki samtala þeirra.Lína á samningi er metin eftir verðinu sem hún er á hverju sinni. Ef liður færist af mánaðarverði sem afslátturinn er bundinn við yfir á ársverð sem hann er ekki bundinn við fær hann engan afslátt, og aftur afslátt ef hann færist til baka.
Kóða er hafnað þegar ekkert í kaupunum, eða á samningnum sem hann er settur á, fellur undir afsláttinn.
Ef áskrift færist á áskriftarleið eða áskriftarmöguleika utan listanna helst afslátturinn á henni en lækkar ekkert fyrr en hún færist aftur á leið eða möguleika sem hann nær yfir.
onceafsláttur nýtist ekki upp á greiðslu sem hann lækkaði ekki.Áskriftarleiðir, áskriftarmöguleikar, vörur og verð þurfa að tilheyra sama reikningi. Í
PATCHhelst listi óbreyttur ef honum er sleppt og tómur listi ([]) tæmir hann.Ekki er hægt að eyða áskriftarleið, áskriftarmöguleika, vöru eða verði sem afsláttur er bundinn við, né áskriftarleið sem á áskriftarmöguleika eða vöru sem á verð sem afsláttur er bundinn við.
Kynningarkóðar
Kall |
Lýsing |
|---|---|
|
Listar kynningarkóða. Síur: |
|
Stofnar kynningarkóða. |
|
Sækir einn kynningarkóða. |
|
Uppfærir kynningarkóða að hluta. |
|
Eyðir kynningarkóða (mjúk eyðing). |
Dæmi um stofnun á kóða sem aðeins einn viðskiptavinur getur nýtt einu sinni:
{
"coupon": "coup_5f3a1c2b9d8e4f6a7b8c9d0e",
"code": "VELKOMIN",
"customer_reference": "customer-123",
"max_redemptions": 1,
"expires_at": "2026-12-31T23:59:59Z",
"restrictions": {
"minimum_amount": "1000",
"minimum_amount_currency": "ISK"
}
}
Reglur:
couponþarf að vera afsláttur í sama reikningi.codeer 4-50 stafir (bókstafir, tölustafir, bandstrik og undirstrik) og er alltaf geymdur með hástöfum. Ef honum er sleppt er kóði búinn til sjálfkrafa. Kóðinn þarf að vera einstakur meðal virkra kóða reikningsins; óvirkir (active: false) og eyddir kóðar losa kóðann til endurnotkunar.Viðskiptavinur er tilgreindur með
customer(auðkenni) eðacustomer_reference, ekki báðum.nullfjarlægir bindinguna.restrictionsstyður eingöngu lágmarksupphæð:minimum_amount(hærri en 0) ogminimum_amount_currency(ISO 4217 kóði) þurfa að fylgjast að. Tómt{}fjarlægir takmörkunina.Kynningarkóða sem hefur verið nýttur er ekki hægt að eyða. Setjið
activeáfalseí staðinn.
Nýting kóða á áskriftir er skjöluð með áskriftarköllunum, sjá
POST /api/v2/subscription-contracts/{contractId}/apply-code/ fyrir V2
samninga og POST /api/subscriptions/{subscription_id}/apply-code/ fyrir eldri
áskriftir.